CFBDSIR J214947.2-040308.9, reikistjarna á flandri (merkt)
Á þessari innrauðu ljósmynd sem tekin var með SOFI mælitækinu í New Technology Telescope ESO í La Silla stjörnustöðinni, sést CFBDSIR J214947.2-040308.9, reikistjarna á flandri. Þetta fyrirbæri, sem sést sem fölblár blettur á miðri myndinni, er nálægasta fyrirbæri sinnar tegundar við sólkerfið okkar. Það hringsólar ekki um stjörnu og endurvarpar þar af leiðandi ekki neinu ljósi; einungis er hægt að greina daufan innrauðan bjarmann sem það gefur frá sér. Fyrirbærið sýnist bláleitt á þessari nær-innrauðu mynd vegna þess að metan og aðrar sameindir í lofthjúpnum gleypa löngu innrauðu bylgjulengdirnar að mestu leyti. Fyrirbærið er svo kalt að ef við sæjum það í návigi í sýnilegu ljósi, gæfi það frá sér daufan dimmrauðan bjarma.
Mynd/Myndskeið:ESO/P. Delorme
Um myndina
Auðkenni: | eso1245c |
Tungumál: | is |
Tegund: | Athuganir |
Útgáfudagur: | Nóv 14, 2012, 12:00 CET |
Tengdar fréttatilkynningar: | eso1245 |
Stærð: | 876 x 876 px |
Um fyrirbærið
Nafn: | CFBDSIR 2149-0403, CFBDSIR J214947.2-040308.9 |
Tegund: | Milky Way : Planet Milky Way : Star : Circumstellar Material : Planetary System |
Fjarlægð: | 100 ljósár |
Constellation: | Aquarius |
Bakgrunnsmynd
Hnit
Position (RA): | 21 49 47.24 |
Position (Dec): | -4° 3' 9.13" |
Field of view: | 4.20 x 4.20 arcminutes |
Stefna: | Norður er 0.0° vinstri frá lóðréttu |
Litir og síur
Tíðnisvið | Sjónauki |
---|---|
Innrautt J | New Technology Telescope SOFI |
Innrautt H | New Technology Telescope SOFI |
Innrautt K | New Technology Telescope SOFI |